Pro-pakkariStefanía Ósk Garðarsdóttir
Er að leggja lokahönd á meistaraverkið mitt - ferðatöskuna......og er svo stolt að allt rúmast vel í henni
Held mér hafi tekist að læra eitthvað af henni móður minni í pökkunarbrögðum og ráðum, mjög fegin að vera ekki með jafn þunga tösku og þegar ég kom, virkilega leiðinlegt að rogast með svona þungt ferlíki í hræðilega þröngum lestargöngunum!!Og þetta er bara allt að klárast! Er voðalega ein núna, Karin fór í morgunn og er líklegast komin heim til sín núna, held það sé bara ég og Yasu frá Japan sem erum ennþá hér...
Held ég láti þetta bara gott heita, sjáumst á klakanum!!

Flær og imbinnStefanía Ósk Garðarsdóttir
Deginum í dag var eytt í feitt sjónvarpsgláp skal ég segja ykkur, eftir að ég kom heim úr skólanum plantaði ég mér fyrir framan sjónvarpið og horfði í fyrsta skipti á litlu hafmeyjuna! Eftir myndina var ég svo komin í eitthvað disney-nostalgíukast og skellti hefðarköttunum í tækið, snilldarmynd
Fann svo Louis & Clark á einhverri sjónvarpsstöðinni og eftir það var Ally McBeal, algjörlega að missa mig í þessum gömlu sjónvarpsþáttum og myndum, allt saman á frönsku að sjálfsögðu 
Síðasta helgi var róleg að vanda, á föstudagskvöldið fórum við allur skólinn (mínus 2) á barinn, setti inn örfáar myndir af því! Skemmtum okkur vel með polaroyd myndavélina hennar Katie, ótrúlega skemmtilegt tæki
Hún fór svo heim á laugardaginn ásamt einni af japönsku stelpunum og í dag fór Melanie til Parísar þannig hún kemur ekki aftur í skólann og núna erum við bara 6 þar! Frekar dauflegt eitthvað! 
Síðasta sunnudag skellti ég mér svo á flóamarkaðinn! Þvílíkur hellingur af allskonar drasli sem hægt var að finna þarna, hefði átt að taka með mér myndavél eða stílabók til að ná myndum eða nóta hjá mér eitthvað af þessu fáránlega dóti sem ég fann þarna t.d. steypuhrærivél, risastórar standklukkur fyrir stofuna, hermannahjálmar úr síðarri heimsstyrjöldinni, einhver hafði tekið í sundur baðherbergisinnréttinguna sína og var að selja öll stykkin úr henni, auðvitað allar tegundir af fötum sem hægt er að ímynda sér, eldgamlir nintendo tölvuleikir (þessir gráu stóru), straujárn frá 19 öld, símar frá sautjánhundruð og súrkál, ævafornar Singer-saumavélar, úrkynjaðar tölvur og ryðgaðir pítsuofnar...úff mikið mikið fleira sem ég man ekki núna, segi bara Kolaportið hvað?! Var reyndar ekki í brjáluðu stuði til að henda mér í fatahrúgurnar og fara að róta þannig ég keypti varla neitt en ótrúlega gaman að sjá þetta allt saman 

Hefði kannski átt að taka með mér eina svona í ferðatöskuna?
Er að spá í að kíkja á Colombo í sjónvarpinu, bulla kannski eitthvað meira á morgun 
Jólasveinninn minn, jólasveinninn minn...Stefanía Ósk Garðarsdóttir
...kom í dag færandi hendi og gaf mér nammi í skólanum
Í dag er dagur heilags Nikulásar og það er víst voðalega skemmtilegur dagur þar sem jólasveininn kemur og gefur manni eitthvað gott nammi! Maður er auðvitað alls ekki inní þessum hefðum, held reyndar að þetta sé ekki hefð hér en er það að minnsta kosti í Sviss og á mörgum fleiri stöðum, allavegna það sterk hefð að Monique aðstoðarskólastjóri gaf okkur öllum súkkulaði í morgunn!! Skemmtileg hefði þessi 
Síðasta helgi var ótrúlega skemmtileg! Fékk franska matarmenningu beint í æð en mér, Karin, Melanie og Katie var boðið í æðisgengna ostaveislu hjá Corine kennara! Þetta var alveg hreint frábært kvöld, byrjuðum á því að fá brauðstangir og rósavín í forrétt, í aðalrétt voru svo 10 bestu ostar Frakklands og ótrúlega gott salat með bestu salatsósu sem ég hef smakkað mmm!!! Og ég var einstaklega mikil hetja og smakkaði næstum alla ostana, smakkaði meira að segja þann sem lyktaði verst og alles! Án gríns þá lyktaði osturinn eins og fjós!! Bragðið var samt alls öðruvísi, mjög gott en eftirbragðið var hálfgert fjósabragð þannig það var heppilegt að hafa gott rauðvín við hendina til að skola þessu öllu saman niður
Í eftirrétt var svo geggjuð súkkulaði-kastaníuhnetukaka sem var vægast sagt frábær! Svo fékk maður auðvitað expressó eftir öll herlegheitin og þar sem við stelpurnar höfðum splæst í ægilegt konfekt handa Corine gaf hún okkur af því með kaffinu líka þannig maður var gjörsamlega sprungin!! Síðan var spjallað og hlegið langt fram eftir kvöldi og haft það náðugt með jólatónlist í jazzbúningi í bakgrunninum 
Annars er ekkert brjálað mikið að gerast, er ennþá að vesenast með fjandans moskítóbitin, fékk svona leiðindaofnæmi eftir bitin og þau eru svo lengi að fara og klæja alltaf brjálæðislega mikið þannig ég er alveg að klikkast!! Hundleið á þessu 
Hey fór aftur í klippingu í dag, er næstum því orðin ljóshærð núna! Greinilegt að minn hryllilegi hárlitur er ekkert svo slæmur þegar hárið er svona rosalega stutt, er bara ljóst þá en ekki gráleitt. Pínulítið skrýtið samt að það svona ljóst, var alveg búin að gleyma því hvernig það leit út 
Næsta föstudag verður svo kveðjupartý fyrir Katie og á laugardaginn ætla ég að fara á flóamarkað niður við höfn. Skil ekki af hverju ég er ekki búin að fara áður á þennan flóamarkað, hann er alla laugardaga og sunnudaga og ég sem elska gamalt drasl og er búin að vera hérna í 3 mánuði er aldrei búin að fara!! Þvílíkt hneyksli
Kannski ágætt að ég var ekki búin að fatta þetta fyrr, hefði kannski verið búin að kaupa alltof mikið af einhverju gagnslausu dóti sem fer beint inní skáp til að safna enn meira ryki en áður...jæja sjáum til hvað gerist á laugardag!
Er eitthvað voðalega þurr í blogginu núna, læt þetta duga í bili
Það fer að koma að því....Stefanía Ósk Garðarsdóttir
...að við Karin opnum fyrsta gluggann á jóladagatalinu okkar!!! Foreldrar hennar komu hérna færandi hendi um daginn og afhentu okkur ægilega flott jóladagatal í laginu eins og jólatré og svo fékk Karin líka pakkadagatal frá systur sinni þannig ég mun fylgjast spennt með henni næstu daga opna pakkana
Jæks svo eru bara 2 og hálf vika þangað til ég kem heim! Þetta er alveg ferlegt, stóðst ekki mátið síðasta mánudag og byrjaði að hlusta á jólalög!! Var ekkert smá heppin að finna gamla jólaplötu með Ellý og Vilhjálmi sem ég held ég hafi fengið frá mömmu hennar Andreu

Maður kemst sko í jólastemningu við að hlusta á þetta!!
Er svo orðin illa haldin af súkkulaðifíkn líka! Þetta fjall af súkkulaði sem foreldrar Karinar komu með er óðum að hverfa (á óhugnalegum hraða eiginlega), þarf að setja á mig súkkulaðihömlur
Reyndi að ljúga því að mér að þetta væri allt í lagi því þetta tonn af mandarínum og bönunum sem ég hef borðað á sama tíma myndi vega uppá móti allri þessari óhullustu en því miður tókst mér það ekki og samviskan farin að plaga mig 

Mmm lítur vel út ekki satt??
Ég er eitthvað ferlega andlaus í þessu blessaða bloggi...er ekki búin að gera neitt af mér þessa viku finnst mér nema læra og hanga á kaffihúsum, er samt á leiðinni til Aix-En-Provence í næstu viku með Karin og þýskri konu úr skólanum á bílnum hennar þannig ég er ekki algjörlega aðgerðarlaus

Þetta er ekki að gera sig...held ég fari og fái mér banana
Merci merci!Stefanía Ósk Garðarsdóttir
Þá er afmælisdagurinn liðinn! Takk fyrir allar kveðjurnar, þær voru alveg frábærar allar saman!! 
Við Karin ákváðum að skella okkur í dagsferð til Nice í tilefni afmælisdagsins, rifum okkur á fætur fyrir allar aldir og tókum rútuna héðan kl 7. Vorum frekar óheppnar með veður um morguninn en það hellirigndi þegar við mættum á svæðið um 9 leytið og við ekki með neinar regnhlífar! Vorum þó fljótar að bjarga því og versla okkur þessa þarfahluti svo við gátum þó allavegna gengið um bæinn meðan veðrið var svona óhentugt
Vorum ekkert alveg búnar að athuga hvað væri hægt að gera og skoða í Nice fyrir fram, frekar óskipulagðar í öllu nema tímasetningum á rútunni, en römbuðum þó á gamla kastalasvæðið á hæðinni fyrir ofan borgina! Garðurinn í kringum kastalarústirnar var fáránlega stór! Röltum þarna um svæðið í einhvern einn og hálfan tíma og tókst aldrei að finna þessar blessuðu rústir, fundum rústirnar af kirkjunni, tilbúin foss frá miðöldum og svakalegan kirkjugarð með bling bling grahýsum og leiðum = kaþólskt!
Var hálf sjokkeruð eiginlega þegar ég gekk inn í kirkjugarðinn, ótrúlegt hvað fólk hefur haft mikið fyrir því að gera grafirnar sem stærstar og flottastar á þessum tíma, átta mig ekki á þessu! 
Jæja eftir þetta ævintýri í hallargarðinum vorum við orðnar verulega hungraðar (ekki það að kirkjugarðurinn hafi verið svona lystaukandi) og fundum ótrúlega notalegan ítalskan veitingastað í gamla bænum þar sem ég fékk heldur illa skammtað ravioli sem bragðaðist þó alveg frábærlega vel!
Eftir matinn fórum við svo í sigtseeing tour um Nice skipulagðan af okkur sjálfum
Gengum meðfram sjávarsíðunni, grandskoðuðum gamla bæinn, fundum allar mikilvægustu gömlu byggingarnar og ýmislegt fleira í þeim dúrnum! Urðum svo að fara heim kl 5 því þá var síðasta rútan, maður hefði eiginlega þurft að gista eina nótt og verið búinn að finna betur út hvað hægt væri að gera og skoða, leist allavegna mjög vel á borgina og hefði viljað verið lengur þar 
Þegar við komum heim beið okkar svo æðisleg heimtilbúin súkkulaðikaka og ís nammi namm!!
Elska matinn hennar Marie, allt sem hún býr til er snilld án gríns, kannski ein salatdressing sem mér finnst ekkert spes, en allt annað er alveg fyrsta flokks! Þarf að rukka hana um heilan helling af uppskriftum áður en ég fer heim, það er alveg á hreinu!
En svona til að klára daginn skruppum við í bíó á nýju James Bond myndina! Fannst hún bara nokkuð góð verð ég að segja! Hann var mikið öðruvísi karakter heldur en maður er vanur en mér fannst breytingin bara alls ekki svo slæm, bara ansi góð
Þetta var í fyrsta skipti sem ég hef verið í fullum sal hérna í bíó, alveg greinilegt að fólk stundar bíóið stíft um helgar!
Þessi afmælisdagur var hálfskrýtinn samt, svo vön því að það sé skítkallt, stundum snjór og maður hittir alla vinina og djammar eitthvað í tilefni dagsins, en núna var bara hlýtt, eftir hádegið var sól og gott veður, enginn fjölskyldumeðlimur eða vinirnir með manni (allavegna enginn sem maður er búinn að þekkja lengur en 2 mánuði
) Held bara að ég sé farin að hlakka til að komast í kuldann, óeðlilegt að vera í sumar-haust fílingnum í lok nóvember!!
Var samt hálfgert afmælisbarn í dag líka, Katie og Melanie buðu mér út að borða í hádeginu, vorum hálfóheppnar með veitingastaðina samt, nánast allt lokað, en fundum þó einn geggjaðan ítalskan stað sem var opinn þannig það var feit pasta- og lasagna veisla hjá okkur!
Prófuðum svo einhverja 3 eftirrétti sem voru allir geggjaðir! Súkkulaðibúðingur, perubaka og tiramishu...mmm...
Er svo aðeins farin að hallast í átt að kaffidrykkju hmm...stend sjálfa mig að því að drekka espresso og cappochino reglulega, eiginlega frekar skrýtið þar sem mér finnst kaffi bara ekkert sérstakt en drekk það samt oft hér
Kannski er það bara útaf maður er í Frakklandi??

Jæja nenni ekki meiru í bili, bætti inn nokkrum myndum 
Það rignir!Stefanía Ósk Garðarsdóttir
Vá það rignir! Veðurfræðingarnir búnir að vera að spá rigningu í viku eða svo og þetta var fyrst að gerast í dag...
Annars sit hér inni í herbergi og reyni að leita að blogggyðjunni, vil meina að hún fylgi heilsu Marie = í mikilli lægð, en mamma Marie er búin að vera veik í nánast þrjár vikur samfleytt!! Aumingja konan, náði sér í einhverja leiðinda kvefflensu sem hún virðist aldrei ætla að losna almennilega við, ótrúlega pirrandi fyrir hana! Hún er samt alltaf jafn mikið hörkukvendi þrátt fyrir öll þessi veikindi, heldur matarboð og ég veit ekki hvað! Þokkaleg hetja...
Síðustu helgi komu foreldrar Karinar í heimsókn, ég hékk nú bara með familíunni allan tímann sem þau voru hérna enda snilldar fólk, systir hennar kom líka með foreldrum þeirra þannig við stelpurnar vorum alveg í góðum gír saman! Skellti inn örfáum myndum af þeim þegar við fórum á algeríska-franska staðinn sem við erum alltaf að hanga á, reyktum eitt stykki sicha pípu með foreldrunum sem var frekar fyndið og höfðum bara ótrúlega gaman
Þau voru alveg brjáluð að splæsa á mig, leið eins og ég væri þriðja systirin nánast
Í gær skipti ég svo um bekk, er komin í efsta bekkinn núna og það er mikið betra! Ekki alveg jafn mikil málfræði en rosalega mikið verið að tala, einmitt það sem ég þarf meiri æfingu í! Er reyndar svolítið pirruð á henni vinkonu minni frá Bandaríkjunum, hún skipti nefninlega líka um bekk með mér og málið er að hún er alltaf að reyna að segja eitthvað en er alveg hræðilega léleg í að tala, bara að segja einföldustu hluti er erfitt fyrir hana og það getur verið einstaklega pirrandi þegar hún malar og malar (stamar og stamar) í heilmargar mínútur um einhverja mynd sem hún sá (hún er alltaf að tala um einhverjar bíómyndir sem enginn hefur séð!) og allur bekkurinn löngu búinn að missa áhugann, auðvitað góð æfing fyrir hana og allt það en stundum hægir þetta eitthvað svo á bekknum og alveg takmörk fyrir því hvað maður talar um sjálfan sig svona fyrir framan alla...
fer stundum alveg hræðilega í taugarnar á mér og fleirum, það er meira að segja ástæðan fyrir því að Melanie vill ekki skipta um bekk (og þær búa saman, greyið...) En þetta er samt ekkert of hræðilegt, sem betur fer eru þarna einn ægilega hress Svíi sem er alltaf eitthvað að djóka og þýskur læknir sem getur talað alveg heilmikið um eitthvað áhugavert! Þegar ég spái í því þá er bekkurinn alveg frekar fjölbreyttur, þessir tveir kallar, komnir svolítið á aldur, ein kona svona um fimmtugt frá Ítalíu, ég, Karin og Katie og svo strákur frá Japan sem mætir svona þegar hann er ekki sofandi heima hjá sér
En ein stórmerkileg uppgötvun sem ég gerði! Á ítalska kaffihúsinu í gamla bænum hérna er hægt að fá besta heita súkkulaði sem til er í öllum heimunum!! Þetta er sko ekki eitthvað kakósull sem maður fær alltaf á kaffihúsunum heima heldur ekta ítalskt þykkt heitt súkkulaðigums sem maður þarf að borða með skeið því það er eiginlega of þykkt til að drekka
Sjúklega gott skal ég segja ykkur!! Og það er líka til í allskonar tegundum, þetta sígilda að sjálfsögðu en svo líka allskonar bragðtegundir t.d. hnetu, appelsínu, romm, mjólkursúkkulaði, banana, núggat og alveg heill hellingur í viðbót! Held ég fari þangað seinna í dag og fái mér einn bolla, þetta er bara of gott 
Og svo er afmælið mitt næstu helgi! Hef ekki hugmynd um hvað ég á að gera í tilefni dagsins, einhverjar ábendingar?? Ætla allavegna að fá mér heitt súkkulaði en verð nú eiginlega að gera eitthvað meira en það...hmm...jú bjóða stelpunum að borða kökuna sem Marie ætlar að baka handa mér! Spurning hvort maður ætti að reyna að ferðast eitthvað, skreppa kannski til Cannes, það er ekki svo slæm hugmynd! Reyni allavegna að gera eitthvað 
En já er þetta ekki komið gott? Henti inn nokkrum myndum bæði af fjölskyldunni hennar Karinar og svo einu útstáelsi með stelpunum! Ahh je suis si dynamique 
Bögg...Stefanía Ósk Garðarsdóttir
Sorry með myndirnar, er víst í einhverri skuld og kann ekki alveg að laga það, held nefninlega að ég hafi verið að borga með inneigninn sem var eftir á símanum mínum og svo breytti ég honum í reikning = engin inneign!!
Ætla að reyna að laga þetta, bon courage, moi!
Letingi...Stefanía Ósk Garðarsdóttir
Jæja smellti inn nokkrum myndum svona úr daglega lífinu...Voða lítið að gerast annars finnst mér, í dag er frídagur tengdur fyrri heimsstyrjöldinni og voðalega erfitt að komast einhvert með almenningssamgöngum, er sko alveg búin að sjá það út að ef Frakkarnir hafa einhverja ástæðu til að vinna minna eða ekki neitt þá nýta þeir sér hana
Við ætluðum að fara til Aix-en-Provence í dag en einu ferðirnar voru kl 18 og 20!! Ekki alveg að gera sig, þannig við Karin skruppum bara til Toulon svona til að gera eitthvað, röltum um eitthvað moll sem við fundum í miðbænum og hengum á kaffihúsi við höfnina alveg heillengi, alveg óhugnalega latar í dag 
Úff er sko alls ekki í neinu bloggstuði í dag, hrikalega andlaus eitthvað, er líka alveg búin að átta mig á því hvað ég sakna píanósins míns mikið!! Ef mér leiddist eitthvað heima gat ég alltaf bara farið að glamra en það gengur víst ekki alveg upp hér...

Langar samt að óska Helgu snillingi til hamingju með frábæran árangur á söngkeppninni, tu es super chouette!!



Nörd...Stefanía Ósk Garðarsdóttir
Það hlaut að koma að því að ég bryti eitthvað hérna í íbúðinni, tókst í dag að brjóta lampann minn svona snyrtilega...Hann var nefninlega mjög skemmtilega staðsettur í fataskápnum mínum og í dag þegar ég ætlaði að ná mér í peysu úr skápnum tókst mér auðvitað að slengja honum í gólfið, zût!!! Alveg óþolandi að brjóta hluti finnst mér, held ég sé með netta fóbíu við að eyðileggja eða brjóta hluti...fann illa fyrir því í gær þegar ég horfði á bad boys II með Karin, var orðin gífurlega pirruð yfir myndinni því hún snerist eiginlega bara um það að eyðileggja bíla, brjóta hluti og vera sem mestur töffari með því að rústa enn fleiru! Ekki alveg minn tebolli...
Eeeeen þetta er allt önnur ella... Þar sem Marie er algjör þúsundþjalasmiður tókst henni að sjálfsögðu að líma lampann saman á ný jess
Er búin að ákveða að gefa þeim nýjan og voða fancy lampa að kveðjugjöf eftir rúman mánuð
Og svo er það fjárans jólaskapið! Það truflar mig einstaklega mikið þessa dagana að sjá allar jólaskreytingarnar yfir götunum og líka þá staðreynd að sumar búðir eru byrjaðar með útstillingar í gluggum og fleira í þeim dúr, ekki má líka gleyma jóladagatölunum sem komu í verslanir fyrir 3 vikum eða svo! Í alvöru, ég er að verða brjáluð!! Langar bara að blasta jólalög og borða smákökur, hræðilegt ástand! Hélt ég myndi svo algjörlega sleppa mér í gær þegar það kom auglýsing í sjónvarpinu með klingjandi jólatónum...var búin að lofa sjálfri mér því að ég myndi bíða (með miklum erfiðleikum þó) eftir afmælinu mínu og leyfa mér þá að hlusta á eitt jólalag eða svo en ég er ekki viss um að ég haldi það út núna!
Er að reyna að hugsa um eitthvað annað en jólaundirbúning og ákvað að lesa til að halda huganum fjarri...myndasögur eru alveg snilld í svoleiðis skal ég segja ykkur
Og Frakkarnir geta alveg búið til eitthvað annað en jólaskreytingar, er búin að lesa nokkrar bækur og horfa á tvær heilar dvd-myndir með Titeuf!! Algjör snilld, Titeuf er 10 ára strákur og ekkert smá skotinn í henni Nadiu þannig það er mjög oft þemað í þáttunum og bókunum en svo er hann líka bara brjálæðislega fyndinn!! Ótrúlega mikið af fyndum pælingum um hvernig það er að vera fullorðin og fleira í þeim dúr, stóð sjálfa mig að því að veina úr hlátri yfir einni bókinni, ein inni í herbergi, og geta ekki hætt, svakalegt 

Þessi helgi var feitasta letihelgi sem ég hef upplifað hérna, eyddi mestöllum tímanum fyrir framan sjónvarpið með José og glápti á myndir og allskonar franska þætti...þvílíkt úrval af sjónvarpsefni sem ég hef, um 300 stöðvar án gríns! Rétt svo drattaðist út í smástund á laugardagsmorgunn til að fara á markað og lá svo bara í einum af sjúklega þægilegu sófunum þeirra nánast þangað til í morgunn...
Reyndar fórum við u.þ.b. helmingurinn af skólanum (8 manns) út á föstudagskvöldið og gerðum okkur glaðan dag, nokkrir voru að fara heim þannig tilvalið að setjast niður inná næsta bar
Hitti tvær franskar stelpur sem kenndu mér öll helstu ljótu orðin sem maður þarf að kunna og kenndu mér líka hvernig Frakkarnir reyna að stytta allt sem þeir segja! Semsagt lærði alveg heilan helling á barnum líka, kannski maður ætti bara að drífa sig þangað öll kvöld?? 

Stebba sorakjaftur
Nú er úti veður vott...Stefanía Ósk Garðarsdóttir
verður allt að klessu...sérstaklega þegar allur hundaskíturinn sem er hérna á götunum byrjar að blotna og verður bara að drullusvaði á gangstéttunum, ekki geðslegt!!En hvað um það! Um síðustu helgi var veðrið geggjað gott og við stelpurnar skelltum okkur til Marseille! Þessi borg er alveg rosaleg í einu orði sagt
Allsstaðar á götunum voru einhverjar brjálaðar viðgerðir í gangi þannig níðþung umferðin varð enn þyngri og þetta var bara hálfgert kaos fannst mér! Göturnar og gangsstéttirnar voru svo alveg einsstaklega skítugar, held að þarna hafi verið hægt að finna allar heimsins tengundir af rusli á götunum án gríns, þetta var svakalegt! Veit líka ekki hversu marga betlara ég sá þennan dag, hef bara aldrei á ævi minni séð jafnmarga betlara á einum stað eins og í aðalgötunni...Það var nú samt alls ekki allt slæmt við Marseille, borgin er alveg stútfull af eldævafornum styttum og byggingum sem er rosalega gaman að skoða (borgin sjálf ein af elstu borgum Frakklands líka) og við borðuðum niðri við gömlu höfnin og höfðu það náðugt þar
Náðum í rauninni ekki að gera mikið þótt við værum þarna í einhverja 6 tíma, eftir matinn fórum við uppá hæð sem stendur þarna í útjaðri bæjarins og uppá henni hundgömul en ótrúlega flott kirkja (Notre-dame de la garde) þar sem útsýnið yfir bæinn og sjóinn hreint út sagt stórkostlegt! Síðan var líka gaman að skoða kirkjuna, þótt ég hafi ekki enst mjög lengi þar inni, en hún er ótrúlega fallega skreytt og byggingarstíllinn á henni líka mjög fallegur
En þetta var nú bara allt sem við náðum að gera þarna! Jú reyndar kíktum inní nokkrar búðir að sjálfsögðu en ekkert að ráði samt...held samt að þessi eini dagur í Marseille hafi alveg verið nóg fyrir mig, er ekkert að rosalega spennt fyrir að fara þangað aftur, full klikkuð borg fyrir minn smekk

Vá svo er bara fyrsti nóvember á morgunn!! Hjá Frökkunum er það almennur frídagur, allraheilagra messa eða heitir það ekki örugglega það? Toussant heitir það að minnsta kosti á frönsku og auðvitað tengt kaþólsku trúnni...Hafði ekkert spáð í því að langstærsti hluti Frakka er kaþólskur, ekki að það breyti eitthvað miklu

Hmm er eitthvað voðalega andlaus í blogginu núna, erum 5 ótrúlegt en satt í bekknum okkur núna, ég Melanie og Haie frá Víetnam sem vorum áður, svo bættist við kona frá Írlandi og stelpa frá El Salvador sem býr með Melanie núna og er tær snilld
Talar ekkert smá hratt og blandar svo skemmtilega inn spænskum orðum svona inná milli, ekkert smá fyndið að hlusta á hana! Jæja nenni ekki meiru í bili, hendi inn myndum frá Marseille á morgun